Fréttir

Saga Fiskifélags Íslands í 100 ár

Í dag kom út Saga Fiskifélags Íslands í 100 ár, stórt og mikið verk, 424 síður í brotinu 210 x 250 mm. Bókin er í hörðu bandi, gylling á kili og lausblaðakápa. Höfundar verksins eru Hjörtur Gíslason og Jón Hjaltason en útgefandi er Völuspá útgáfa. Prentun og bókband var unnið hjá okkur og erum við mjög stolt af verkinu. Við þökkum útgefanda fyrir samstarfið og það traust sem hann sýndi okkur þegar ákvörðun var tekin um vinnslu verksins.

 

Í boði náttúrunnar

Við erum nýbúin að skila af okkur tímaritinu Í boði náttúrunnar - Vetur, sem er í A4 broti, 80 síður + kápa, prentað í fjórlit og kápusett. Tímaritið kemur út fjórum sinnum á ári í 3.000 eintökum og er hvert tölublað helgað yfirstandandi árstíð. Ásprent prentar nú tímaritið í fyrsta skipti en tímaritið hefur komið út frá árinu 2010. Verkið er mjög krefjandi, prentað á óhúðaðan pappír, stórar myndir og miklar kröfur um gæði allt frá myndvinnslu til lokafrágangs. Við erum stolt yfir útkomunni og væntum mikils af samstarfinu við útgefendurna, Guðbjörgu og Jón. Þau vita svo sannarlega hvað þau vilja og við erum full tilhlökkunar og sjálfstrausts að standa undir þeirra væntingum.  

Íslensk knattspyrna 2011 prentuð í Ásprenti

Ásprent og útgáfufélagið Tindur hafa gengið frá samningi til næstu þriggja ára um prentun á bókinni Íslensk knattspyrna. Bókin er þekkt meðal knattspyrnuáhugamanna en í henni er farið yfir knattspyrnuárið í máli og myndum.  Bókin er 256 síður í brotinu A4, að stórum hluta litprentuð. Útgáfudagur er 25. nóvember.

Prentun

Ásprent byggir á öflugri liðsheild starfsfólks með mikinn faglegan metnað. Langstærsti hluti starfsfólks okkar er fagmenntað í prentgreinum og hefur áratuga reynslu á sínu sviði.

Nánar: Prentun