Dagskráin

Ásprent gefur út Dagskrána sem er auglýsingarit með upplýsingum um dagskrá sjónvarpsstöðva. Dagskráin kom fyrst út í desember 1968 og hefur komið út vikulega síðan.  Dagskránni er dreift í 11.500 eintökum í hvert hús á svæðinu frá Ólafsfirði til Húsavíkur alla miðvikudaga. Kannanir Capacent síðustu ár sýna algera yfirburði Dagskrárinnar sem auglýsingamiðils á svæðinu . Auglýsingastjóri Dagskrárinnar er Hera Kristín Óðinsdóttir, hera@asprent.is,  sími 4 600 704.  Nánari upplýsingar um Dagskrána er hægt að finna á www.dagskrain.is sem er einn öflugasti afþreyingar- og upplýsingavefur norðanlands.