Límmiðar
Við erum stöðugt að vaxa í límmiðaprentun og bætum þar við okkur viðskiptavinum í hverri viku. Ástæðan er einföld; við bjóðum gott verð, gæði í prentun og afburða þjónustu. Við höfum einbeitt okkur sérstaklega að matvælaiðnaðinum. Þar skiptir öllu máli að límmiðarnir standist þær kröfur sem gerðar eru og að þeir séu afhentir á réttum tíma. Við erum stolt af því að þjóna ánægðum viðskiptavinum á borð við Norðlenska sem m.a. framleiðir Goða vörur, Bruggsmiðjuna sem framleiðir bjórinn Kalda og Mjöll Frigg með sína hreinlætisvörulínu. Hafðu samband við Ómar Pétursson í síma 860 6700 eða omar@asprent.is og sjáðu hvað við getum gert fyrir þig.
